<BVSXML version="1.0">
   <YFIRLIT titill="Yfirlit">
      <texti titill="Almennt">
         <texti>Borgarvefsjáin veitir aðgang að miklu magni upplýsinga jafnt fyrir sérfræðinga sem almenning. Á næstu skjámyndum verður fjallað almennt um hvað Borgarvefsjáin hefur upp á að bjóða. Einnig er hægt að skoða nánar einstaka flokka í aðalvalmynd hjálparsíðunnar til að fá nánari útskýringar á virkni einstakra hnappa. Til að keyra upp Borgarvefsjána þarf að vera búið að setja upp Shockwave viðbót fyrir vafrann á vélinni.</texti>
      </texti>
      <adalkort titill="Aðalkort">
         <texti>Hér í miðjunni er aðalkort Borgarvefsjárinnar. Í aðalkortaglugga birtast þær upplýsingar á kortaformi sem óskað er eftir hverju sinni.</texti>
      </adalkort>
      <yfirlitskort titill="Yfirlitskort">
         <texti>Ef þysjað er inn fæst nærmynd af þeim stað sem óskað er eftir. Efst í vinstra horninu er yfirlitskort af höfuðborgarsvæðinu, sem er smækkuð mynd af upphafskorti Borgarvefsjárinnar og sýnir hún afstöðu kortsins í aðalkortaglugga sem rauðan ramma.</texti>
      </yfirlitskort>
      <thema titill="Þemalisti">
         <texti>Vallistinn hér til vinstri hefur að geyma mikið magn ólíkra upplýsinga. Hægt er að skruna niður og upp þennan glugga til að finna það upplýsingaþema sem óskað er eftir að birtist á aðalkortaglugga . Upplýsingaþemun skiptast í yfirflokka, t.d. lagnir, upplýsingar, framkvæmdir, þjónustu, borgarskiptingu og annað, sem geta tekið breytingum eftir því sem Borgarvefsjáin þróast áfram.</texti>
      </thema>
      <thema_valid titill="Þema valið">
         <texti>Þema er valið til birtingar með því að smella einu sinni á viðkomandi lið og upplitast þá það upplýsingaþema sem valið hefur verið, hægt er að láta vefsjána birta fleiri en eitt þema í einu. Eftir að þema er valið þarf ávalt að smella á endurhlaða hnappinn til að vefsjáin sæki uppfært kort með viðeigandi gögnum. Hér sést hvar bæði raflagnir og vatnslagnir tengjast viðkomandi byggingu.</texti>
      </thema_valid>
      <upplysingar titill="Upplýsingar ( i )">
         <texti>Nú gæti verið áhugavert að sjá nánari upplýsingar um þá lögn sem valin hefur verið. Til að það sé hægt þarf að velja sérstaklega það þema sem óskað er eftir að fá upplýsingar um. Það er gert með því að smella á einvalshnappinn fyrir framan nafn þemans, sem þá verður upplitaður og breytist þá formið á bendlinum í i sem þýðir að nú má smella á viðkomandi raflögn og birtast þá frekari upplýsingar um hana í sérstökum upplýsingaglugga.</texti>
      </upplysingar>
      <upplysingagluggi titill="Upplýsingagluggi">
         <texti>Í upplýsingaglugga birtist nákvæm lýsing á viðkomandi hlut, t.d. fyrir raflögnina fást m.a. upplýsingar um tegund hennar, spennu og lagningarár. Þær upplýsingar sem birtast eru breytilegar eftir hverju þema fyrir sig.</texti>
      </upplysingagluggi>
      <hnappastika titill="Lárétt hnappavastika">
         <texti>Í þessari hnappastiku er hægt að framkvæma ólíkar aðgerðir í Borgarvefsjánni. Hægt er að fara beint inní upphafskort, endurteikna kort, þysja inn, þysja út, hliðra korti, mæla lengdir og flatarmál á völdu svæði.  Jafnframt er hægt að prenta út það kort sem er sýnilegt í aðalkortaglugga og birtist þá viðkomandi kort í sér glugga til útprentunar. Hvenær sem er má nálgast leiðbeiningar í hjálparvalmynd. Ennfremur er hægt að leita að götu eða finna ákveðið heimilisfang.</texti>
      </hnappastika>
      <maelikvardi titill="Mælikvarðastika">
         <texti>Á sérstakri stiku í aðalkortaglugga sést ávallt mælikvarði þess korts sem valið hefur verið. Jafnframt sjást ætíð nákvæm hnit, í ISN93 landshnitakerfinu, af því svæði sem músarbendillinn fer yfir.</texti>
      </maelikvardi>
      <qtvr titill="360 gráðu myndir" slod="http://www.apple.com/quicktime/download/">
         <texti>Að lokum er bent á að Borgarvefsjáin hefur upp á að bjóða fjöldann allan af 360 gráðu myndum þar sem í raun og veru er hægt að snúa sér í heilhring á þeim stað sem valinn hefur verið og þannig skoða umhverfið eins og maður væri sjálfur staddur á þeim stað. Til að þetta sé hægt er nauðsynlegt að hafa QuickTimeVR viðbót (QTVR), en hana er hægt að nálgast á http://www.apple.com/. Til að fá myndina til að snúast þarf að smella á hana með vinstri músarhnapp og draga músarbendilinn til.</texti>
      </qtvr>
   </YFIRLIT>
   <UPPHAFSKORT titill="Upphafskort">
      <texti>Í hvert skipti sem Borgarvefsjáin er ræst birtist upphafskort af Reykjavík og nágrenni í aðalkortaglugganum.</texti>
      <texti>Hvenær sem er, er hægt að kalla fram upphafskort með því að smella á hnöttinn.</texti>
      <texti>Upphafskortið er ávallt sýnilegt í yfirlitsramma, þannig að auðvelt er að átta sig á afstöðu þess svæðis sem sést í aðalkortaglugga.</texti>
   </UPPHAFSKORT>
   <ENDURHLADA titill="Endurteikna kort">
      <texti>Í hvert skipti sem ákveðið þema eða þemu hafa verið valin þarf að smella á endurteiknunarhnappinn til að kortið, með nýjum upplýsingum, teiknist upp í aðalkortaglugga.</texti>
      <texti>Kerfið sækir þá upplýsingar í gagnagrunna LUKR og birtir að lokum nýtt kort.</texti>
   </ENDURHLADA>
   <THYSJA titill="Þysja inn/út">
      <texti>Borgarvefsjáin leyfir þér að skoða kort eins nálægt eða í eins mikilli fjarlægð og hentar hverju sinni.</texti>
      <texti>Hægt er að fá nærmynd af ákveðnum stað á kortinu með því að velja innþysjunarhnappinn og breytist þá músarbendillinn í stækkunargler með + í miðjunni.</texti>
      <texti>Hægt er að þysja inn eftir tveimur leiðum. Annars vegar með að því að smella á vinstri músarhnappinn einu sinni á þann stað á aðalkortinu þar sem nærmyndar er óskað,  hins vegar er hægt að velja ákveðið horn og draga ramma utan um það svæði sem óskað er eftir að fá nærmynd af. Þetta er gert með því að halda vinstri músarhnappnum niðri og draga músarbendilinn skáhallt yfir tiltekið svæði og sleppa síðan þegar svæði hefur verið valið. Þá mun kerfið endurteikna nýtt kort í samræmi við það.</texti>
      <texti>Tilsvarandi virkni er í útþysjun. Fyrst er smellt á útþysjunarhnappinn. Þá breytist músarbendillinn í stækkunargler með mínus í miðjunni. Svo er hægt að smella einu sinni á valið svæði í aðalkortaglugga eða að halda mús niðri, draga ramma og loks sleppa til að skilgreina hlutfallslega stækkun svæðis á korti.</texti>
   </THYSJA>
   <HLIDRA titill="Hliðra korti">
      <texti>Til að fá kort af svæði til hliðar við það svæði sem sýnilegt er í aðalkortaglugga er hliðrunarhnappurinn valinn. Þá breytist músarbendill í hönd.</texti>
      <texti>Með því að halda niðri vinstri hnappi og draga músina eftir kortinu, hliðrast kortið til og birtist þá nýtt kort með miðju þar sem músarhnappnum var sleppt.</texti>
   </HLIDRA>
   <UPPLYSINGAR titill="Upplýsingar í þemalista og tólastiku.">
      <texti>Hægt er að fá nánari upplýsingar um flest þemu.</texti>
      <texti>Það er gert með því að smella á einvalshnapp framan við viðkomandi atriði í þemalistanum sem þá upplitast.</texti>
      <texti>Formið á músarbendlinum breytist í ( i ) sem stendur fyrir information og gefur til kynna að nú megi smella á viðkomandi þema í aðalkortaglugga til að birta nánari upplýsingar um það.</texti>
      <texti>Sé þörf á að þysja inn/eða út eða framkvæma aðrar aðgerðir á milli þess sem upplýsingar um þema eru sóttar, breytist virkni músarbendilsins í samræmi við valda aðgerð. Til að geta aftur sótt upplýsingar um valda þemað þarf að smella á i-hnappinn á tólastikunni.</texti>
      <texti>Nú er hægt að smella á viðkomandi þema, Borgarvefsjá sækir gögnin og birtir í upplýsingaglugganum.</texti>
      <texti>Hægt er að færa glugga til...</texti>
      <texti> ...eða loka honum með því að smella á X-ið í hægra horni.</texti>
   </UPPLYSINGAR>
   <MAELAVEGALENGD titill="Mæla vegalengd">
      <texti>Í Borgarvefsjánni er hægt að mæla vegalengdir.</texti>
      <texti>Það er gert með því að smella á M hnappinn. Breytist þá formið á músarbendlinum í M.</texti>
      <texti>Vegalengd er nú mæld með því að vinstrismella á þann stað á kortinu þar sem mæling byrjar. Síðan er smellt á næsta stað.</texti>
      <texti>Í drapplita rammanum birtist fjarlægðin á milli punktanna tveggja í metrum.</texti>
      <texti>Hægt er að bæta við fleiri punktum til að mæla flóknari ferla. Hér má til dæmis sjá vegalengdina umhverfis Tjörnina í Reykjavík.</texti>
   </MAELAVEGALENGD>
   <MAELAFLATARMAL titill="Mæla flatarmál">
      <texti>Í Borgarvefsjánni er hægt að mæla flatarmál af kortinu.</texti>
      <texti>Það er gert með því að smella á M2. Breytist þá formið á músarbendlinum í M2.</texti>
      <texti>Flatarmál er mælt með því að vinstrismella á þann stað á kortinu þar sem mæling byrjar. Síðan er smellt á tvo eða fleiri staði í viðbót til að skilgreina flötinn, allt eftir því hversu óreglulegur hann er.</texti>
      <texti>Í drapplita rammanum birtist flatarmál þess svæðis sem valið hefur verið í fermetrum.</texti>
      <texti>Hér má til dæmis sjá stærð fótboltavallarins í Laugardalnum.</texti>
   </MAELAFLATARMAL>
   <PRENTA titill="Prenta Kort">
      <texti>Borgarvefsjáin býður upp á útprentun á því korti sem sýnilegt er í aðalkortaglugga.</texti>
      <texti>Þegar búið er að velja tiltekið kort til útprentunar er smellt á útprentunarhnappinn.</texti>
      <texti>Borgarvefsjáin sækir nú kortið og birtir á JPG formi í nýjum vafraglugga.</texti>
      <texti>Nú er hægt að fara í File og Print í stjórnstiku vafrans.</texti>
      <texti>Myndin prentast út.</texti>
      <texti>Með því að hægrismella á myndina og velja Save As er hægt að vista myndina á disk til notkunar í öðrum forritum.</texti>
   </PRENTA>
   <HJALP titill="Hjálp">
      <texti>Hvenær sem er má nálgast leiðbeiningar í hjálparvalmynd.</texti>
      <texti>Hægt að nálgast hjálpina frá fyrstu valmynd áður en Borgarvefsjáin er keyrð upp.</texti>
      <texti>Einnig er hægt að kalla fram hjálp með því að smella á hjálparhnapp í tólastiku Borgarvefsjárinnar.</texti>
      <texti>Nú er hægt að fara í textahjálp sem hægt er að prenta út eða einstaka þætti í gagnvirkri hjálp.</texti>
   </HJALP>
   <LEITAADHEIMILISFANGI titill="Leit að heimilisfangi">
      <texti>Sláðu inn það heimilisfang, sem þú vilt finna. Heimilisfang er slegið inn sem nafn götu í nefnifalli að viðbættu húsnúmeri með bili á milli.</texti>
      <texti>Smelltu síðan á hnappinn Leita.</texti>
      <texti>Kerfið leitar í gagngrunni að viðkomandi heimilisfangi og birtir síðan staðsetningu þess með rauðri stjörnu á korti.</texti>
      <texti>Í einstaka tilfellum er sama heimilisfang til í fleiri en einu sveitarfélagi á höfuðborgarsvæðinu, t.d. er  Hverfisgata 8 bæði í Reykjavík og Hafnarfirði. Birtast þá tvær eða fleiri stjörnur á kortinu.</texti>
      <texti>Hægt er að velja stækkunarglerið, og þysja inn til að fá nærmynd af viðkomandi húsi.</texti>
   </LEITAADHEIMILISFANGI>
   <LEITAADGOTU titill="Leit að götu">
      <texti>Sláðu inn þá götu sem þú vilt finna. Nafn götu er slegið inn í nefnifalli.</texti>
      <texti>Smelltu síðan á hnappinn Leita.</texti>
      <texti>Kerfið leitar í gagnagrunni að viðkomandi götu og birtir síðan staðsetningu hennar sem rautt, feitt strik á kortinu.</texti>
      <texti>Í einstaka tilfellum er til gata með sama nafni í fleiri en einu sveitarfélagi á höfuðborgarsvæðinu. T.d. er Hverfisgata til bæði í Reykjavík og Hafnarfirði. Birtast þá tvær eða fleiri rauðar línur á kortinu.</texti>
   </LEITAADGOTU>
   <KVEIKJATHEMA titill="Kveikja á þema">
      <texti>Vallistinn til vinstri hefur að geyma fjöldann allan af ólíkum upplýsingaþemum.</texti>
      <texti>Með örvatökkunum er hægt að skruna niður og upp listann til að finna það/þau upplýsingaþemu sem óskað er eftir að birta í aðalkortaglugga.</texti>
      <texti>Þemunum er skipt í nokkra yfirflokka, t.d. Lagnir, Upplýsingar, Framkvæmdir, Þjónusta, Borgarskipting og Annað. Þessi listi getur tekið breytingum eftir því sem frá líður.</texti>
      <texti>Þema er valið til birtingar á korti með því að smella einu sinni á heiti þess og litast það þá. Hægt er að láta vefsjána birta mörg þemu í einu.</texti>
      <texti>Eftir að hafa valið/afvalið það/þau þemu sem óskað er eftir að birtist á korti þarf ávallt að smella á endurteiknunarhnappinn til að vefsjáin uppfæri kort með völdum þemum.</texti>
      <texti>Hér sést hvar bæði raflagnir og vatnslagnir tengjast viðkomandi byggingu.</texti>
   </KVEIKJATHEMA>
</BVSXML>

